21.10.2008 | 14:30
Tína........................... douze point.
LOKSINS gleðifréttir.
Þið munið að ég sagði ykkur frá því að ég hefði farið á mótþróaskeið og hætt að taka inn lyfin mín í þeirri viðleitni að neyða kortísól framleiðsluna í gang er það ekki????
Well kæru vinir................................... ÞAÐ TÓKST!!!!!
Ég fór s.s í blóðprufu í gærmorgun og þá kom í ljós að ég væri farin að framleiða. Að vísu í litlu magni......... en HALLÓ framleiðsla er framleiðsla....... ekki satt?
Sérfræðingurinn minn hringdi í mig í dag alveg kampakát með niðurstöðuna og fannst þetta í rauninni stórmerkilegt. Hún sagði að hún myndi ekki mæla með þessari aðferð við neinn en stundum væri bara ekki annað hægt. Jú ég neita því ekki að þessar rúmu 2 vikur hafi verið ansi erfiðar, en ég vissi allan tímann að þetta yrði allt annað en auðvelt. Mergurinn málsins er sá að ÞETTA TÓKST *doingthecrazydance*
Nú á ég að fara á morgun á sjúkrahúsið í bænum þar sem framkvæmd verður svokallað stimulation test og á þá að kanna hvaðan kortisólið kemur og ganga úr skugga um að það sé ekki heilaæxlið sem er farið að framleiða. Ég vona að ég hafi að minnsta kosti skilið þetta rétt.
Mig langaði bara svo óskaplega mikið til að deila þessum æðislegu fréttum með ykkur. Sérstaklega þegar að er gáð að þið hafið staðið með mér í þessu.
HAPPY kossar á línuna
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Vonandi er þetta smá batamerki, byrjun á einhverju ennþá betra.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.10.2008 kl. 14:36
Dásamlegt meiriháttar elsku vinkona þetta eru bestu fréttir sem ég hef heyrt lengi. Dýrka þig
Sigurlín (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 14:47
YNDISLEGAR GLEÐIFRÉTTIR ELSKU DÚLLAN MÍN ... vonandi vonandi með eitt sætt kraftaverk í barminum eru góðir hlutir að gerast!
Takk elsku vinkona, þú ert yndisleg!
www.zordis.com, 21.10.2008 kl. 15:03
Tína Sigurvegari, ekkert minna. Þú ert til fyrirmyndar, dásamlegar fréttir.
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 21.10.2008 kl. 16:09
Þú vinnur alls staðar þar sem þú stígur niður eða þrjóskast við, þetta er ótrúlegt. Það er náttúrulega ekki nema fólk eins og þú sem dettur í hug að storka örlögunum og gera ekki það sem læknirinn segir. En Til hamingju elsku dúllan mín og vonum að framleiðnin komi frá réttum stað, það yrði næsti sigur.
Hvernig dettur þér síðan í hug að segja að þú sért ljót???? Láttu mig nú aldrei heyra þetta til þín aftur!!! Þú ert falleg, sæt og yndisleg manneskja og ekkert múður. Hann Leifur er náttúrulega bara snillingur sem hefur haft geðveikislega gott af þessari bátsferð. Vonandi dregur það samt ekki úr honum, fyrstu túrarnir eru verstir hef ég heyrt.
Knús elskan mín, Áfram sigurvegari
Guðrún Helga Gísladóttir, 21.10.2008 kl. 16:10
Landi, 21.10.2008 kl. 16:20
Brynja skordal, 21.10.2008 kl. 16:57
Mikið eru þetta gleðilegar fréttir Ég ligg hér og brosi hringinn!! Ég varð að lesa mig upp þar sem ég er búin að missa allmarga daga úr bloggheiminum og er ég svo óendanlega glöð að þetta hafi borið árangur! Nú er bara að vona að framleiðslan sé að koma frá nýrnahettunum sjálfum og hef ég fulla trú á að svo sé!! Mér finnst þú svo óendanlega dugleg og sterk að ganga í gegnum allar þessar kvalir til að ath hvort það beri árangur
Innilegar hamingjuóskir með tvíbökuna þína, ekkert smá flottur árangur hjá henni og skil ég vel að þú skulir vera stolt af henni og monta þig
þúsund knús og kossar til þín elsku Tína
Kristín (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 17:00
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.10.2008 kl. 18:11
Gunna dansa gleðidans :))))))))))))))
Gunna-Polly, 21.10.2008 kl. 19:34
...góðar fréttir kæra vinkona.....
Fanney Björg Karlsdóttir, 21.10.2008 kl. 19:50
þú ert hetja
Hólmdís Hjartardóttir, 21.10.2008 kl. 20:28
Hmm... ég ætla ekki að segja frábært. En... ég skal alveg með ánægju segja... Meiri háttar! :-)
En ... farðu nú samt vel með og ykkur!
Einar Indriðason, 21.10.2008 kl. 21:08
christinemarie.blog.is þú ert einstök
Hrönn Sigurðardóttir, 21.10.2008 kl. 21:16
yesssssssssss ég skal sko dansa gleðidansinn með þér
Knús til þín elsku vinkona og vonandi verður þetta bara fyrsta skrefið af mörgum góðum
Dísa Dóra, 21.10.2008 kl. 21:23
Þú er sannkölluð hetja krúttan mín.
Knús og klemm úr sveitinni. Luvya
JEG, 21.10.2008 kl. 21:37
frábært að lesa þetta...haltu svona áfram!
Inga María, 21.10.2008 kl. 23:49
Ooooooohhhh, en hvað ég samgleðst þér. Tek sannarlega undir *doingthecrazydance*.
Knúúúús...
SigrúnSveitó, 22.10.2008 kl. 10:23
Kem og hoppa með þér í hrigi á hringtorginu við brúna......við skulum láta gleðina taka völdin
Solla Guðjóns, 22.10.2008 kl. 20:19
Elsku Tína mín. .. eins og þú segir; Framleiðsla er framleiðsla - sama hvað hver segir! Æðislegt að heyra ..
Knús á þig gullið mitt!
Tiger, 24.10.2008 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.