Mýslan mín

Agnes

 

í dag er það mýslan mín hún Agnes sem á afmæli og er hún 19 ára í dag. Þó að hún sé langminnst að þá var samt LANGerfiðast að koma henni inn í þennan heim. Hún Agnes mín er líka eina stelpan í hópnum. Hún er sú allra rólegasta og jafnframt sú alvörugefnasta. Hún er líkust mér og minnir mig afskaplega á sjálfa mig þegar ég var yngri. Það er ekki til að dóttir mín geri eitthvað af sér, það er bara ekki í henni. Eins og er með mig þá fæddist þessi drottning fullorðin. Og dugleg er hún. Því miður er hún orðin fullorðin og er flutt að heiman, þannig að ég gat ekki kysst hana til hamingju með daginn en sendi henni þess í stað fljúgandi koss hér í gegnum netið. Einnig er þessari drottningu minni gjörsamlega fyrirmunað að vera með símann á sér, en þegar hún er með hann þá er ansi oft slökkt á honum. Kom það mér því ekki mikið á óvart þegar ég hringdi í morgun að hún skuli ekki svara, en hún hringdi nú til baka fljótlega.

 

Til hamingju með 19 árið þitt hjartans Mýslan mín. Og ég hlakka mikið til að sjá þig fljótlega. Hér er svo moli sem mig langar að tileinka þér krútta og vona að þú hugsir mikið um hann á þessu ári. Gleymdu svo aldrei hversu heitt ég elska þig stelpa,

 

Uppspretta hamingjunnar er í hjarta þínu, ekki í umhverfinu í kringum þig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn frænka

Mamma þín hefur valið fallegan mola handa þér!

Hrönn Sigurðardóttir, 7.2.2009 kl. 11:53

2 identicon

Hjartans hamingjuósk, Tína mín, með þessa fallegu stúlku þína.

Og innilega til hamingju með afmælið, Agnes!

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 12:20

3 Smámynd: Einar Indriðason

Til hamingju með daginn, báðar tvær :-)

Einar Indriðason, 7.2.2009 kl. 12:31

4 Smámynd: JEG

Til hamingju með skvísuna.  Knús og kossar úr sveitinni. 

JEG, 7.2.2009 kl. 12:34

5 Smámynd: www.zordis.com

Til hamingju með dóttluna, yndisleg og falleg! Molann ættum við öll að tileinka okkur því hann er sannur.

Knús og kossar til þín ljúfa móðir!

www.zordis.com, 7.2.2009 kl. 12:45

6 Smámynd: Ragnheiður

Falleg eins og mamma sín.

Til hamingu með afmælið unga mær og megi framtíðin brosa við þér

Kær kveðja Tína mín

Ragnheiður , 7.2.2009 kl. 12:48

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með þessa fallegu dóttur

Sigrún Jónsdóttir, 7.2.2009 kl. 14:00

8 Smámynd: Guðrún Helga Gísladóttir

Hæ elsku Tína mín, til hamingju með þessa fallegu dóttur.  Til hamingju með 19 árin Agnes mín, þó að þú munir sjálfsagt lítið eða ekkert eftir mér því það er mjög langt síðan ég hitti þig.

Að þau verði miklu fleiri og hamingjurík.

Guðrún Helga Gísladóttir, 7.2.2009 kl. 20:21

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég óska þér innilega til hamingju með litlu dóttur þína, hún er falleg stelpan    Moli dagsins er svo sannur

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.2.2009 kl. 22:08

10 identicon

Elsku Tína, innilegar hamingjuóskir með gullfallegu dóttir þína Ég vona að hún hafi notið afmælisdagsins sem senn er á enda !

Vona að þú hafir það sem allra best og vonandi heyri ég í þér fljótlega ! Ég hugsa daglega til þín og sendi þér allan minn styrk og þann kraft sem ég mögulega get

Þú ert einstök og sönn hetja !!

Kristín (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 23:15

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með þessa fallegu stúlku.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.2.2009 kl. 09:42

12 Smámynd: Sigrún Óskars

Til hamingju með stelpuna þína - falleg stelpa.

Molinn er góður - eins og molarnir þínir eru allir  Sendi þér knús yfir heiðina og góðar kveðjur

Sigrún Óskars, 8.2.2009 kl. 10:30

13 Smámynd: Dísa Dóra

Innilega til hamingju með þessa fallegu dömu elsku Tina mín

Dísa Dóra, 8.2.2009 kl. 10:39

14 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæj  Tína mín.Til hamingju með stelpuna.Þú átt gullmola ef hún líkist þér

Stórt fang fyrir þig hjá mér

Solla Guðjóns, 8.2.2009 kl. 11:22

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með stelpuna þína.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2009 kl. 20:20

16 identicon

takk fyrr bloggið elsku mamma mín og til hamingju sömuleiðis ég veit það var erfitt að koma mér í heimin en ef það er eitthvað sem ég erfði frá þér þá er það þrjóskan ég elska þig mamma

Agnes Maria (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 10:58

17 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Til hamingju með "mýsluna" þína...... þið eruð nokkuð líkar mæðgurnar...

Fanney Björg Karlsdóttir, 9.2.2009 kl. 17:55

18 Smámynd: Tiger

  Ussuss .. seint koma sumir en koma þó. Minns er búinn að tótally gleyma sér niðursokknum í pólitískum blogghamagangi. Er búinn að vera að hugsa það síðustu daga að eitthvað vantaði og eitthvað var ekki alveg eins og það átti að vera - en fattaði ekkert - fyrr en núna allt í einu sló það mig beint í nebbann!

Mig vantaði að sjá lífsmark frá vinkonu minni henni Tínu!!!

Dauðskammast mín fyrir hvað ég er búinn að gleyma mér í pólitíkinni - en hér er ég kominn með stórt faðmlag til þín ljúfust og saknaðar- og afsökunarbros ...

Til hamingju með þessa fallegu stúlku - þó seint sé. Farðu nú að senda frá þér blogg - láta heyra í þér - þó það sé ekki nema fyrirsögn og eitt orð eins og "Hæ". Sakna þín skottið mitt ...

Tiger, 11.2.2009 kl. 00:35

19 Smámynd: Tiger

Tiger, 12.2.2009 kl. 00:51

20 Smámynd: Tiger

Tiger, 13.2.2009 kl. 12:37

21 Smámynd: Tiger

Tiger, 14.2.2009 kl. 00:13

22 Smámynd: Tiger

Verð að segja það sko - að gullkornið í þessari færslu er ekki alveg að gera sig sko - því að hamingjan sé sprottin í hjarta en ekki umhverfi ...

Þú ert nefnilega í umhverfi mínu - bloggumhverfi - og maður er nú bara ekkert hamingjusamur á meðan maður heyrir ekkert frá þér ... en sannur gullmoli - ert þú sjálf Tína mín - hafsjór af kærleika og alltof stórt hjarta í litlum viðkvæmum líkama ... so tú spík. Farðu nú að hætta þarna fyrir austan, segðu fólkinu þínu upp - og komdu til mín dúllan mín ... (okok, fjölskyldan má fylgja með - væri þess virði að sitja uppi með þau líka bara ef ég fæ svona dásamlegan gullmola í faðminn)!

Það sem ég er raunverulega að reyna að segja; Sakna þín Tína mín og hef sannarlega áhyggjur af þér! Knús og kærleiksljós í þitt hús ljúfust ...

Tiger, 15.2.2009 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband