4.11.2008 | 09:20
Koma svooooooooo
Ég vil taka það fram að það er engin skylda að versla!!!!!!!!
Ef ykkur langar í eitthvað úr búðinni þá er það vel. Ef ekki þá er það líka í fínu lagi. Aðalatriðið er að hittast og gera sér dagamun. Sýna sig og sjá aðra sem og að breyta aðeins til. Enga leti gott fólk. En ég lofa ykkur því að þetta á eftir að vera þrælgaman.
Ferðin í brugghúsið kostar 500 kr á mann og borgar verslunin 500 á móti.
Þið hafið engu að tapa en ALLT að vinna. Lítum aðeins upp úr neikvæðu fréttunum og gefum okkur leyfi til að skemmta okkur aðeins. Ég mana ykkur til þess að koma og takið einhvern með ykkur sem ekki veitti af að skemmta sér örlítið.
Ef þið vitið ekki hvað ég er að tala um, þá vinsamlegast lesið siðasta blogg. Og engar afsakanir.
Athugasemdir
Einmitt, koma svo þetta verður meiriháttar gaman
Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2008 kl. 09:30
Úhú! Má maður taka með sér sætan iðnaðarmann?
Hrönn Sigurðardóttir, 4.11.2008 kl. 09:45
Hólmdís Hjartardóttir, 4.11.2008 kl. 10:32
Er Hrönn á sénsinum? Úlalalala.
Andskotans Tína, ég veit ekki hvort ég kemst en eitt er á hreinu að ég VERÐ að koma fyrir jól og versla á karlinn.
Málið er að eina voninn til að fá hann með mér í fatakaup er að það sé einhver sem kann til verka.
Fatakaup á manninn eru aðalvandamálið á þessu heimili.
Af því má sjá hversu andskoti gott ég hef það.
Fyrirgefðu blótið. Er að leggja áherslu á orð mín.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2008 kl. 10:40
Ásdís: Ekki spurning
Hrönn: Þó þeir væru 2!!! Já eða fleiri
Hólmdís: Á sko eftir að sakna þess að sjá þig ekki.
Jenný: Ég skal taka bóndann þinn að mér. Ef það er eitthvað sem ég kann fjári vel þá er það þetta. Ég er ekki að monta mig en þetta er engu að síður staðreynd. Láttu mig vita hvenær þú vilt koma og ég skal þá mæta á svæðið og sjá um ykkur
Tína, 4.11.2008 kl. 11:27
Takk Tína mín, kem þegar fer að líða á mánuðinn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2008 kl. 11:43
Elskulega Tína mín, ég verð víst að passast hér. Er að vinna alla helgina út í eitt og virkir dagar eru mjög þungir hjá mér svo ég sé ekki fram á að geta farið frá ...
En, ef ég sæi mér gloppu - þá mæti ég sem leynigestur og poppa upp úr tertu - nakinn! *Yeah, right!* ...
Endalaust fallegt framlag að gefa prósentur af sölu til góðra málefna, enda svo þér líkt að gera eitthvað í þá áttina og kemur ekki á óvart! Það hljómar vel að standa í svona blogghitting og tala nú ekki um kakó og gúmmilaði sko!
Endalaust mikið knús á þig ljúfust og megi allt ganga sem best hjá ykkur!
Tiger, 4.11.2008 kl. 12:23
Mæli með hitting, bara gaman að hitta þessar konur. Tala nú ekki um ef Hrönn mætir með landsliðið í iðnaði wow!
Góða skemmtun!
www.zordis.com, 4.11.2008 kl. 12:30
Er komið á hreint hversu margir koma Tína..ég Kem ca 60% veit ekki meira :)
Landi, 4.11.2008 kl. 12:36
Sennilegast er að við höldum okkur við fyrri plön (þrátt fyrir skotstöðu ) svo þá er ósennilegt að ég komist - kem bara næst
Dísa Dóra, 4.11.2008 kl. 17:13
Ég sé ekkert sem ætti að stoppa mig....skráði mig á laugardaginn..
TíCí myndi óneytalega trekkja að með þessum vangaveltum sínum
og ég er sko sammála honum um hve falllegt þetta er af ykkur
Solla Guðjóns, 5.11.2008 kl. 01:51
Sjáumst
Sammý , 5.11.2008 kl. 07:45
Heyrðu jááááááá.... mér líst vel á svona Tící köku
Hrönn Sigurðardóttir, 5.11.2008 kl. 09:16
Svei mér ef Tigerinn neyðist ekki til þess að taka sér frí úr vinnunni eftir að hafa sagt þetta!!
Tína, 5.11.2008 kl. 09:30
Hæ elsku Tína!
Þetta er alveg meiriháttar sniðugt framtak hjá þér. Ég get, því miður, ekki verið með í þessu, þó það hefði vissulega verið gaman.
Ég er aftur á móti að fara upp á land 16. nóvember, er að fara með stelpuna mína í kirtlatöku á Akranesi. Verð uppi á landi til 24. nóv., kannski væri hægt að hitta á þig?!
Risaknús á þig kæra vinkona,
kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 12:16
Æ því miður kemst ég ekki í þetta sinn enn mikið hefði verið gaman að koma!! En fer á jólahlaðborð á Hótel selfoss með gistingu en ekki alveg komið á hreint hvenar enn þá ætla ég að kíkja í búðina og mikið væri gaman að fá að hitta ykkur þarna í smá kaffihúsahitting þá skoðum málið með það bara en góða skemmtun og gangi ykkur vel knús á þig Tína mín Elskuleg
Brynja skordal, 5.11.2008 kl. 12:54
Wúff .... hopp og popp skammirnar ykkar!
Ætlaði að senda knús á þig Tína mín - en hendi bara hér með tertu í þig - án nakins tígurs.... :)
Tiger, 5.11.2008 kl. 18:41
Ef þetta er súkkulaðiterta Tigerinn minn þá er ég sátt En ertu annars búin að taka þér frí?
Tína, 5.11.2008 kl. 19:35
Er það í lagi að mæta nokkrum mínútum of seint? Ég ætla nefnilega að fara á mótmælafundinn á Austurvelli klukkan 3 og síðan brenni ég austur fyrir fjall. Ef einhvern vantar far er ég í símaskránni og í mínum bíl er reykt
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.11.2008 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.