30.1.2009 | 06:45
Frumburðurinn tvítugur.
Þessi ungi maður er tvítugur í dag. Vá hvað mér finnst samt stutt síðan ég átti hann. Margar eru þær orðnar gleðistundirnar sem hann hefur fært mér og hlakka ég mikið til komandi ára. Hann er nefnilega eins og gott rauðvín ......... verður s.s betri með árunum. En eins og gefur að skilja þá þekki ég þennan dreng eins og lófann á mér og veit þess vegna að hann hálfpartinn gerir ráð fyrir því að ég bloggi um hann í dag, og ekki vil ég bregðast manninum. So here it is.
Til hamingju með daginn hjartað mitt. Hér er svo visdómsmoli fyrir tuttugasta árið þitt
Ný tækifæri blasa við þér á hverjum morgni þegar þú vaknar, þú þarft aðeins að taka eftir þeim og nýta þau.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Daglegt líf, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Til hamingju með strákinn þinn falllega og glaðhlakkalega
Solla Guðjóns, 30.1.2009 kl. 08:06
Hrönn Sigurðardóttir, 30.1.2009 kl. 10:07
Til hamingju með þennan flotta dreng.
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2009 kl. 10:22
Hann er flottur strákurinn eins og hann á kyn til.Til hamingju bæði tvö....það er ástæða til.
Vísdómsmolinn er fínn að vanda.....ég vona bara að hann eigi líka við okkur hin.
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 30.1.2009 kl. 10:45
Til hamingju með drenginn!! (kl 13:40 er það ekki) hahaha bara vegna þess að ég heyrði þig segja það!
ADDA MONSTER! (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:15
ég þakka kærlega fyrir mig mamma mín og einnig fyrir kommentin...og herna adda...ég vill fá afmælis kveðju á frönsku :D....bless í bili farinn i ríkið:D
Leibbi hálf fertugi (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:23
Bonne anniversaire....... er þetta nógu gott!! Múhahaa
ADDA MONSTER! (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:25
Innilega til hamingju með piltinn þinn, Tína mín!
Og til hamingju með afmælið, Leifur!
Kær kveðja
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:35
takk ...:D
þetta var flott....held eg...eg kann ekkert i frönsku...hvad hjalpadi mamma ther mikið...muhahaha
leifur (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:45
Ég þurfti sko enga hjálp.... ég tók svo vel eftir í frönsku að ég.... kíkti bara á netið!
ADDA MONSTER! (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:49
svo vel að þu þektir ekki kennarann;'D HAHAHHAA
leibbi (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 11:51
Ég þekkti hana alveg..... eftir á!
Hahaha.... til hamingju samt með afmæli! Til lykke med fødselsdagen á dönsku líka... til að sína hvað ég er klár!
ADDA MONSTER! (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 12:03
Til hamingju með þennan flotta dreng þinn
Sigrún Jónsdóttir, 30.1.2009 kl. 12:29
hehe nohhh ég kann heldur ekkert í dönsku....ég lét taka mig ur henni i grunskola:D.....en ég þakka kærlega fyrir:)
leibbi (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 13:05
Elsku Tína mín, til hamingju með þennan glæsilega töffara. Segi þér það satt að það sést á andliti hans hve stórt hjartalag hann hefur erft af þér! Það er bjart yfir honum og stórlega gruna ég að framtíð hans eigi eftir að verða eins björt og það fallega ljós sem yfir honum er ..
Leibbi; Til lukku með daginn ..
Tiger, 30.1.2009 kl. 13:59
Til hamingju með drenginn, elsku Tina mín.
Knús&kærleikur
SigrúnSveitó, 30.1.2009 kl. 15:43
Feliz Cumpleaños....þetta varð að koma á spænsku líka. Sæti strákur þú batnar og verður flottari með hverju árinu, haltu því áfram. Megi árið verða mjög gæfuríkt fyrir þig og þína.
Knús á fjölskylduna.
Guðrún Helga Gísladóttir, 30.1.2009 kl. 18:05
Hæhæ Elsku vinkona. Til hamingju með stóra strákinn þinn.
Og Leyfur mínar bestu óskir með daginn í dag. Og njóttu hans rosalega vel.
Sigurlín (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 18:58
Úbbs Leifur átti þetta nú að vera ( ekki Leyfur)
SIgurlín (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 19:04
Ég las fyrirsögnina fyrst sem: "Framburðurinn tvítugur". Hvaða framburður? Kokhljóð? Önghljóð?
Óh. FrUmburðurinn...
Til hamingju með daginn, bæði tvö :-)
Einar Indriðason, 30.1.2009 kl. 21:34
Hyvää syntymäpäivää sinun poijalle. Þetta var smá finnska og þýðir til hamingju með afmæli sonar þíns
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 31.1.2009 kl. 01:00
Til hamingju Leifur og til hamingju kæra bloggvinkona með þennan fantaflotta strák !
Ragnheiður , 31.1.2009 kl. 01:17
Til hamingju með strákinn þinn Tína flottur strákur.
Sigrún Óskars, 31.1.2009 kl. 09:16
Til hamingju með guttann...
Fanney Björg Karlsdóttir, 31.1.2009 kl. 11:15
Til hamingju með frumburðinn elsku Tina mín og til hamingju með afmælið Leifur. Gratulerar på födelsedagen svo þetta sé nú á sænsku líka
Velkomin heim aftur krútta mín- greinilega stórir dagar hjá ykkur núna. Vona að þessi dagur gangi vel líka
Dísa Dóra, 31.1.2009 kl. 11:18
Til hamingju með Strákinn Stóra. Flottur
Knús á þig mín kæra og farðu vel með þig.
JEG, 1.2.2009 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.