Koma svooooooooooo

EF þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ætlar að gera um helgina, þá veit ég um eitt sem getur haldið þér og þínum uppteknum í smá tíma á laugardaginn í það  minnsta Cool

Við hjónin eigum Herraverslunina Blaze á Selfossi og erum jafnframt styrktaraðilar Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Þessi deild er búin að gera svakalega góða hluti og langar okkur því að blása til leiks og styrkja þá enn betur með hjálp frá ykkur.

Laugardagurinn 21. júní verður bæði skemmtilegur og sérstakur í Blaze að því leyti að 20% af sölu dagsins mun renna beint til knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Þú verslar fatnað eða gjafabréf eins og venjulega, en um leið ert þú að styrkja íþróttastarfið svo um munar. Þetta finnst okkur skemmtileg leið til að sýna stuðning í verki og sýna deildinni á Selfossi hversu sterkt bakland hún hefur. Verslunin verður opin kl. 10-18 og heitt á könnunni. Láttu þetta endilega berast áfram.

Þú getur líka styrkt önnur góð málefni á jafn einfaldan máta og skemmt þér meira að segja þokkalega í leiðinni með okkar aðstoð ef þú vilt, en þú getur lesið meira um það hér . Að gefnu tilefni vil ég samt taka fram að þó þetta sé herraverslun þá geta konur líka nýtt sér þetta. 

Hér er svo moli dagsins rúsínurnar mínar: Engin gleði jafnast á við það að starfa öðrum til heilla.

Gangið svo glöð inn í helgina með sól í hjarta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Salvör Kristinsdóttir

sæl nýja bloggvinkona

Jóna Salvör Kristinsdóttir, 20.6.2008 kl. 12:14

2 Smámynd: Tína

Blessuð vinkona og þakka þér vinabeiðnina. Alltaf gaman að eignast nýja vini sjáðu til.

Tína, 20.6.2008 kl. 12:17

3 Smámynd: Jóna Salvör Kristinsdóttir

hehe ég helt að elsti sonur þinn væri miklu eldri :) hann er yngri en ég samt er ég ung:) þú átt mjög falleg börn

Jóna Salvör Kristinsdóttir, 20.6.2008 kl. 12:27

4 Smámynd: Tína

Þakka þér fyrir. Enda er ég svakalega endalaust stolt af þeim öllum. Svo eru þau líka öll svo góðar manneskjur

Tína, 20.6.2008 kl. 13:31

5 Smámynd: Tiger

  Urrr ... burt séð frá börnum og burum - þú ert bara falleg sjálf! Hugsunin á bakvið svona stuðning við íþróttafélög er stjarnfræðilega falleg og göfug. Þið hjónin eruð yndisleg að styðja svona við bakið á ungu og efnilegu óþróttafólki, alveg dásamlegt bara. Ef ég gæti myndi ég koma í heimsókn, þó ekki væri nema til að fá slurk af þessu heita þarna - jú líka heitt faðmlag frá þér sko - en aðallega þetta heita þarna á könnunni þinni.

Gott að vita að þið fáið góða hjálp með að koma heimilinu í stand - síðasta færsla sýnir samhuginn og góðu verki skila margar hendur ætíð.

Knús á þig/ykkur og endalaust takk fyrir góða gullmola í lok hverrar færslu, svo mikið góðir til eftirbreytni. Hafið dásamlega helgi og gangi ykkur vel á morgun ...

Tiger, 20.6.2008 kl. 14:06

6 Smámynd: Tiger

  Ómæómæ .. það átti náttúrulega að vera "íþróttafólki!" en ekki Óþróttafólki ... upsss!

Tiger, 20.6.2008 kl. 14:07

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ekki nenni ég að keyra austur, ég þarf að gera ýmislegt hérna heima hjá mér sem ég hef trassað allt of lengi.  Ég óska ykkur góðrar helgar og mikillar sölu, svo strákarnir fái fullt af peningum í félagið sitt.  Knús og kram

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.6.2008 kl. 00:23

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 21.6.2008 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband