7.11.2008 | 09:50
Þá er komið að því.
Á morgun gerist það.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir er í símaskránni ef einhverjum vantar far austur og vill vera með (búin að skrifa hjá mér númerið og alles). En hún tekur það fram að það er reykt í hennar bíl. Það er ekki skyldumæting kl akkúrat 16:30. En við leggjum af stað upp í brugghús um 10 mínútur í fimm. Fram að þeim tíma þá verður spjallað, skoðað og hlegið.
Ekki er of seint að tilkynna komu. Þið hafið gott af því að breyta aðeins til og skella ykkur austur. Því fleiri því skemmtilegra og endilega talið með ykkur gesti.
Ekki þurfið þið heldur að hafa kvittað hér til að fá að koma. Eina skilyrðið er viljinn til að gera sér glaðan dag.
Mætingin er við Herraverslunina Blaze á Selfossi. Búðin okkar er hrikalega vel merkt. En þar sem bankarnir eiga alla athyglina, þá ætla ég að nota þá til að vísa til vegar. Kaupþing og Sparisjóðurinn eru beint á móti okkur og Glitnir er við hliðina. Ykkar einlæga verður sjálf á staðnum til að taka á móti ykkur.
Ég hlakka til að sjá ykkur.
Athugasemdir
Kemst ekki en verð í bandi. Góða skemmtun þið allar.
Mikið djö.. er Jóna Kolbrún flott kerling. Það er reykt í hennar bíl, djöfull fíla ég svona fólk. Arg.
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.11.2008 kl. 15:06
Hlakka til
Solla Guðjóns, 7.11.2008 kl. 16:13
Góða skemmtun elskur!
Það verður gaman þar sem þu og Sollan komið saman. Knús í kvöldið!
www.zordis.com, 7.11.2008 kl. 21:04
Ég hlakka til að hitta þig Tína
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.11.2008 kl. 01:18
Hólmdís Hjartardóttir, 8.11.2008 kl. 10:20
Sjáumst í dag ;)
Landi, 8.11.2008 kl. 13:18
Er ekki viss um að komast! Svolítið kom upp á! Reyni eins og ég get!
Hrönn Sigurðardóttir, 8.11.2008 kl. 13:39
Skemmtið ykkur. Knús frá Kanada.
Heimir Tómasson, 8.11.2008 kl. 19:13
Takk fyrir kvöldið Tína mín..virkilega skemmtilegt..
Ég verð að hrósa þér og Gunnari með búðina,hún er bara Flott..
Landi, 9.11.2008 kl. 10:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.