9.11.2008 | 11:24
Blogghittingur #1
Þá er fyrsti hittingurinn búin. Ég segi fyrir mína parta að ég skemmti mér mjög vel. Að vísu var fámennt (komu bara 4 af 9) en góðmennt. Þau sem komu voru Hrönn, Jóna Kolbrún (Huxa), Tobbi (Landi) og Solla (Ollasak).
Við hittumst í Blaze en þaðan lá leiðin í brugghúsið í Ölvisholti. Bjarni mágur og Siggi svili minn tóku á móti okkur og leiddu okkur inn í allann sannleikann um framleiðsluna og söguna á bak við bjórana Skjálfta og Móra. Bæði var þetta fróðlegt en líka mjög skemmtilegt þar sem þetta tvíeyki er með skemmtilegri mönnum sem ég þekki. Ég klikkaði þarna að vísu á smáatriði með því að gleyma að taka með mér myndavélina en Jóna tók myndir hægri vinstri og ætla ég að fá nokkrar hjá henni. Bæti þeim inn í þegar þær berast.
Þegar forvitninni var svalað þá fórum við og sóttum hana Hrönn og fórum aftur upp í búð. Tobbi sagðist svo sannarlega hafa fundið þarna sína búð og varð alveg veikur fyrir einum frakka sem hann sá þarna. Einnig fann Hrönn sér kall þarna og fannst henni hann með eindæmum þægilegur og rólegur, sem var bara kostur að hennar mati.
Eftir það lá leiðin á Kaffi Krús og tómir magar fengu þar ærlega fyllingu. Við eyddum dágóðum tíma þar í át og spjall og skemmtum okkur mjög vel. Kvöldinu lauk um hálf tíu og bind ég miklar vonir við að fólk hafi farið frá mér satt og ánægt með kvöldið.
Að lokum langar að mig að biðja þá sem hafa skráð sig eða tilkynnt komu sína á mánudagskvöldið að vera svo væn að láta mig vita ef það ætlar ekki að koma. Svo sjáið þið hérna nokkrar myndir en þið getið síðan séð fleiri í myndaalbúminu. Ég hlakka mikið til að sjá ykkur sem ætlið að koma annað kvöld en ég endurtek.......... í guðana bænum tilkynnið forföll.
Ég þakka ykkur kærlega fyrir mig og gladdi það mig mikið að hitta ykkur. Vonandi verður nú ekki mikil bið á því að ég hitti ykkur næst.
Molinn: Húmor táknar ekki afsal neinnar alvöru. - Tómas Guðmundsson
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Spaugilegt, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:42 | Facebook
Athugasemdir
Ekki gengur mér vel að hlaða myndunum inn á moggabloggið, ég er samt að reyna. Takk fyrir gærdaginn, ég skemmti mér vel. Ég ætla að senda þér myndir í pósti
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.11.2008 kl. 11:35
Takk fyrir mig Tína mín,virkilega gaman hitta ykkur skvísurnar og já hann Gunnar líka
Góður frakki,en þessi frakki er minn
Ég óska svo henni Hrönn til hamingju með nýja kallinn
Landi, 9.11.2008 kl. 11:52
.....gaman eintóm gleði...Takk fyrir mig dúlla...
"Hefði ekki verið BEIKON.......
Ég er vissum að hrönn getur troðið þessum gaur undir rúm á mótþróa.......vú ég sé það alveg fyrir mér...
Solla Guðjóns, 9.11.2008 kl. 11:56
Jóna: Endilega sendu mér myndir krútta. Ég lenti líka í vandræðum til að byrja með við að setja í albúm en þrjóskan borgar sig stundum.
Tobbi: Þú manst bara það sem Hrönn sagði..................... það eru 3 búnir að biðja um hann . En takk fyrir mig sömuleiðis. Virkilega gaman að hitta þig eftir svona mörg ár. En þú hefur ekkert breyst.
Tína, 9.11.2008 kl. 11:58
Solla: Sko beikonið bjargaði þessu alveg skilurðu En ætli ég verði ekki að fara og athuga hvort hann sé horfinn þessi elska.................... ég veit þá allavega hvar hann er að finna
Tína, 9.11.2008 kl. 12:02
sniðug ertu Tína að hafa svona hitting verð bara að skoða myndirnar.
kveðja austur frá mér
Sigrún Óskars, 9.11.2008 kl. 12:08
Tilkynni Herra Höfuðsmaður, sagði Góði Dátinn Svejk.... Ég mæti. Á mánudag mæti ég. Ég býst því við heitu kakói. Hmm... Held ég láti heita kakóið duga. En... kíkja vil ek. (Hvernig var þetta sem ný útfærsla á forníslenskunni?)
Einar Indriðason, 9.11.2008 kl. 12:35
Ææjjj hvað það hefði nú verið gaman að geta kíkt en svona er þetta landið er pínu stórt og bensínið dýrt.
Knús og klemm úr sveitinni essgan.
JEG, 9.11.2008 kl. 12:42
Sigrún: Skila því
Góði Dáti: Vér gleðjumst mikið yfir komu yðar.
Jóna: Isssss við sjáumst þó síðar verði krútta.
Tína, 9.11.2008 kl. 12:50
Tilkynni herra ofursti... þumlarnir vísa báðir upp.
Einar Indriðason, 9.11.2008 kl. 13:05
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.11.2008 kl. 14:23
Ég allveg gjörsamlega missti af þessu..... var ég úti að hjóla... eða hvað..
Fanney Björg Karlsdóttir, 9.11.2008 kl. 14:35
Mikið er gaman að þetta lukkaðist vel. Vonandi verð ég orðin göngufær annaðkvöld, klukkan hvað ætlið þið að hittast?? knús
Ásdís Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 15:03
tíhí! Ég kann sko að velja mér menn.........
Hrönn Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 15:50
Myndirnar eru bráðskemmtilegar, sérstaklega af Hrönn og hennar fyrirtaksmanni!
Edda Agnarsdóttir, 9.11.2008 kl. 16:37
Fanney: Varstu ekki bara gjörsamlega úti á túni???
Ásdís: Hittumst kl 19
Hrönn: Þú ert auðvitað bara LANGflottust sko
Edda: Kemur þú ekki annað kvöld?
Tína, 9.11.2008 kl. 17:12
En gaman hjá ykkur! Oog svo aftur á morgun, alldeilis kraftur í ykkur.
www.zordis.com, 9.11.2008 kl. 18:11
Að lokum langar að mig að biðja þá sem ætla að koma á mánudagskvöldið að vera svo væn að láta mig vita ef það ætlar ekki að koma. Skil ekki alveg ...
Maggi (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 22:29
Þetta er alveg hárrétt hjá þér Maggi og þakka ég þér fyrir að benda mér á þetta.
Tína, 9.11.2008 kl. 22:36
Hólmdís Hjartardóttir, 10.11.2008 kl. 08:20
þetta hefur verið gaman hjá ykkur Fottar myndir af flottu fólki vonandi hitti ég eitthvað af ykkur þarna á selfossi næst þegar ég á leið um hafðu það ljúft Elskuleg
Brynja skordal, 10.11.2008 kl. 14:58
Þetta hefur sannarlega verið skemmtilegt og fúlt bara að þurfa að missa af þessu - en vonandi verður einhver jólahittingur bara og þá auðvitað reynir maður allt sitt besta til að komast líka ...
Knús og kreist á þig yndislegust og vonandi verður gaman hjá ykkur í dag líka - hlakka til að sjá myndirnar ...
Tiger, 10.11.2008 kl. 15:12
Takk fyrir mig :-)
Einar Indriðason, 10.11.2008 kl. 22:31
.................og takk fyrir mig líka
Ásdís Sigurðardóttir, 10.11.2008 kl. 22:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.