Frumburðurinn tvítugur.

Leifur minn 

Þessi ungi maður er tvítugur í dag. Vá hvað mér finnst samt stutt síðan ég átti hann. Margar eru þær orðnar gleðistundirnar sem hann hefur fært mér og hlakka ég mikið til komandi ára. Hann er nefnilega eins og gott rauðvín ......... verður s.s betri með árunum. En eins og gefur að skilja þá þekki ég þennan dreng eins og lófann á mér og veit þess vegna að hann hálfpartinn gerir ráð fyrir því að ég bloggi um hann í dag, og ekki vil ég bregðast manninum. So here it is.

 

Til hamingju með daginn hjartað mitt.  Hér er svo visdómsmoli fyrir tuttugasta árið þitt

 

Ný tækifæri blasa við þér á hverjum morgni þegar þú vaknar, þú þarft aðeins að taka eftir þeim og nýta þau. 


"Er þetta það síðasta sem þú vilt segja við hann/hana?"

Börnin mín hafa að sjálfsögðu eins og systkina er siður, rifist heiftarlega. Oft ef ég varð vitni að látunum og sá eitt barnanna rjúka burt, þá spurði ég "er þetta það síðasta sem þú vilt segja við hann/hana?". Þessi spurning varð oftast til þess að málin róuðust.

Ofanskráð spurning gerir þér fært að virka út frá hjartanu hvernig svo sem einhver manneskja hagar sér. Þú verður ástríkur, þolinmóður, gjöfull og hlýr. Ef einhver hefur gert eitthvað á hlut þinn, hugsaðu þér næst þegar fundum ykkar ber saman að síðasta stund manneskjunnar sem í hlut á sé runninn upp. Þú munt komast að raun um að þú nálgast hana á allt annan hátt. Þér gengi betur að sleppa taki á sársaukanum ef þú vissir að þetta væri hennar síðasti dagur í tölu lifenda á jörðinni. Þegar þú sérð hana næst skaltu ímynda þér að þetta sé í síðasta skiptið sem þíð sjáist. Taktu þá eftir að þú ferð jafnvel að sjá yndislega þætti í fari hennar. Þú gætir jafnvel komið auga á að hún hafði engan ásetning um að særa þig heldur brást aðeins við í samræmi við eigin sársauka. Kannski gerðir þú jafnvel eitthvað sem var svo dropinn sem fyllti mælinn.

Sjáðu fyrir þér hvernig þú kæmir fram við suma sem þú þekkir, ef þú vissir að þú hefðir aðeins þetta eina tækifæri til að vera í samvistum við þá. Þessi færsla gæti fengið þig til að hugsa um einhvern sem farinn er, sem þér tókst ekki að fyrirgefa áður. Ef svo er þá geturðu komið fyrirgefningu á framfæri í gegnum sál þína og hún mun ná til þeirra sem um ræðir.

Jafnvel þó þú ákveðir að reyna að temja þér þennan hugsunarhátt, þá getur það vel átt sér stað að þú getir ekki haldið þig á því stigi mjög lengi. Ef einhver hefur valdið þér sársauka eða vonbrigðum, þá skaltu ekki ætla þér að eyða með henni mörgum tímum þegar þú hittir hana næst. Sjáðu til þess að fundur ykkar verði fremur stuttur og í samræmu við þann tíma sem þú telur þig vissan um að geta haldið þessi nýju atriði í heiðri. Gefðu þér tíma til að tileinka þér þessa aðferð. Þú munt svo komast að því að það verður auðveldara með æfingunni, að halda æðra sjónarhorni gagnvart fólki. Loks gerirðu þetta á eðlilegan, áreynslulausan hátt. Smátt og smátt muntu uppgötva nýjan, elskuríkari og háleitari þig.  Mundu aðeins að æfingin skapar meistarann Wink.

                 

                                     ----------------------------------------------------------------------

 

Annars er ég að fara í húsmæðraorlof í fyrramálið og verð í 5 daga. Við Gunnar ákváðum að það væri skemmtilegra að kalla spítalavistina því nafni. Það gerði það að verkum að mér er nánast farið að hlakka til að fara í "frí". Ótrúlegt hvað stundum er hægt að blekkja hugann. En.................. svo lengi sem það virkar, þá sé ég ekkert að því að gera þetta.

 

Knús á ykkur öll og munum svo að elska náungann ALLTAF.

 

Vikumolinn: Snúðu neikvæðum hugsunum í jákvæðar og sjáðu hvernig það breytir deginum. 

                

 


Afsökunarbeiðni og fréttir

Fyrst langar mig að biðja ykkur vini mína afsökunar á því að hafa ekki gefið mér stund í langan tíma til að kíkja á bloggin ykkar. Loforðið mitt stendur um að það standi nú allt til bóta þó að það verði ekki alveg strax. En eins og ég hef sagt að þá er bara voðalega lítil orka eftir þegar ég er búin að vinna. Vonandi verðið þið áfram þolinmóð við mig sem fyrr.

Við hjónin fórum og hittum sérfræðinginn í dag. Mér hefur farið töluvert aftur síðustu vikurnar og verð ég lögð inn næstkomandi mánudag og er gert ráð fyrir að ég verði alla vikuna. Þar verða ítarlegar rannsóknir framkvæmdar og framhaldsmeðferð ákveðin. Taugarnar eru eitthvað að gera mér lífið leitt og gera það að verkum að ég kúgast kannski allt í einu í miðri setningu. Þetta er frekar neyðarlegt og er ég farin að kvíða því að þetta gæti gerst meðan ég er að afgreiða. Ekki vildi ég láta afgreiða mig og starfsmaðurinn færi allt í einu að kúgast. Ég er heldur ekki að bregðast rétt við lyfjameðferðinni og grínaðist sérfræðingurinn með að það væri kannski réttast að skrifa kennslubók um mitt tilfelli.

Einnig vissi ég ekki lengur í hvorn fótinn ég átti að stíga og er því komin með hækju Tounge. Hana nota ég þegar ég er orðin mjög þreytt í fótleggnum. Hún fer mér sko alveg þrusuvel get ég sagt ykkur.

Við Gunnar tókum síðan mjög erfiða ákvörðun um daginn. En við erum s.s búin að ákveða að loka versluninni. Ég hef bara ekki orku í að berjast á báðum vígstöðvum, því svona rekstur er í dag afskaplega þungur og barátta á hverjum einasta degi. Ég er alveg ákveðin í að berjast og hafa betur í veikindabaslinu en til að geta það þá þarf ég á allri minni orku að halda. Og hún er bara sem stendur af mjög skornum skammti. Ástandið í þjóðfélaginu hjálpaði bara til við að taka þessa ákvörðun. Búðinni verður lokað í kringum mánaðarmótin og er rýmingarsalan í fullum gangi núna. Þetta er meðal annars ein ástæðan fyrir því að ég geti bráðum staðið við loforð mitt um að sinna ykkur bloggvinum mínum aðeins betur.

Jæja elskurnar mínar................... þetta eru fréttirnar sem stendur. Veit ekki alveg hvenær ég blogga næst en það verður vonandi fljótlega.

 

Hér er svo molinn að vanda: Í hvert sinn sem eitthvað gott hendir þig, láttu þá eitthvað gott henda einhvern annan.

 

Knús á línuna


8 ár

Brúðkaup

Í dag eru 8 ár síðan þessi mynd var tekin.

Ekki ætla ég að hafa mörg orð um þetta. Enda bý ég ekki yfir nægilega sterkum orðum til að lýsa manninum mínum. Það eina sem ég get í rauninni sagt er að ég er svo hriiiiikalega vel gift!!! Vonandi segir þetta allt sem segja þarf. Ekki get ég hugsað mér lífið án hans og ég vil það ekki heldur. Aldrei hefði ég getað og gæti ekki staðið í öllu sem gengur á hjá mér án hans stuðnings og styrks. Ég hreinlega ELSKA þennan mann. 

 

Molinn að þessu sinni er því tileinkaður honum Gunnari mínum: Ást er tvær samhljóma sálir og tvö hjörtu sem slá í takt.


Fréttir af mínum og mér

Jæja ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg.

Ég fór stóra dýfu um daginn og er hægt og rólega að komast upp aftur. Ég taldi þetta vera eingöngu vegna fréttanna sem ég fékk rétt eftir jólin en minn heitt elskaði minnti mig á að ég hefði líka verið svona síðast þegar ég fór í þessa lyfjameðferð. Það tæki líkamanum tíma að aðlagast og þetta væri bara svona. Mér var farið að mislíka sjálfa mig ansi mikið og kunni bara ALLS EKKI við þessa skapvondu Tínu.

Nokkrir vina minna sem lesa þetta blogg komu alveg sérstaklega til þess að knúsa mig og þótti mér endalaust vænt um það. Einar bloggvinur með meiru gerði sér meira að segja ferð úr bænum til þess. Það jákvæða er að vanlíðanin sem fylgir þessu gleymist fljótt. Allavega geri ég það. Ég var meira að segja búin að gleyma því að ég ætti sérstök ógleðilyf!!! Sigurlín vinkona mín kom um daginn og var ég þá ælandi eins og múkki. Mundi hún þá eftir þessum lyfjum og leitaði í hvert einasta box (sko nóg til af þeim) og las á alla fylgiseðlana þar til hún fann rétta lyfið. Svona vinir eru ómetanlegir. Svo hlær hún bara að mér ef ég er í geðvonskukasti og finnst ég bara fyndin.

Núna erum við hjónin að undirbúa útsölu í búðinni. Við erum orðin nokkuð þekkt fyrir að hafa þetta aldrei eins og er engin breyting þar á. Það var búið að vera hryllilega rólegt að gera og ákváðum við þess vegna að loka búðinni á meðan undirbúningurinn er. Ég einfaldlega hef ekki orku í að sprengja mig á þessu utan eðlilegs opnunartíma. Vonandi sýnir fólk því skilning. Í raun efast ég um annað. Margir hérna vita orðið af baráttu minni. Við munum svo opna aftur á þriðjudaginn hress og kát. Eða í það minnsta kát. Útsalan hjá okkur að þessu sinni verður með því sniði að allt er sett á heildsöluverð. Jebb þið lásuð þetta rétt. Síðast vorum við enn kræfari og tókum núllin af. SHIT þá varð sko allt vitlaust. En við ætlum ekki að gera það núna. Núna fer s.s allt á heildsöluverð. Og venju samkvæmt þá verður þetta stutt en góð útsala.

Elsku Hrönn mín kom og hjálpaði til við að verðmerkja og var það hreinasti brandari að fylgjast með henni. Hvað þá að hlusta á hana. Nokkrum sinnum heyrðist í henni "Tína.............. sko ég tek ekki þátt í þessari vitleysu!!!" En hún hætti nú samt ekki að hjálpa þessi elska.

 

Jæja elsku vinir......................... læt hér staðar numið í bili. Farið vel með ykkur

 

Molinn: Stundum erum við svo önnumkafin við að öðlast meira, að við gleymum þakklætinu yfir því sem við höfum.

Guð geymi ykkur

 

 

 


Draumur

Getur einhver ráðið fyrir mig drauminn sem mig dreymdi í nótt? Mig dreymdi að ég væri að ganga inn í húsið mitt og húslykillinn sem ég hélt á í hendinni, brotnaði um leið og ég gekk inn. Lengri var þessi draumur nú ekki.

Sálartetrið er ekki upp á sitt besta hjá mér þessa dagana. Ég er bara ekki að sætta mig við fréttirnar sem ég fékk á þriðjudaginn. Mér líður eins og ég sitji á púðurtunnu, því að ég er ekki að ná að stjórna skapinu heldur. Hvæsandi hægri, vinstri og er bara yfirhöfuð erfið.

Sumir kunna að segja að það sé í góðu lagi. En ég er bara ekki sammála því. Ég má ekki láta sjálfsvorkunina ná þvílíkum tökum á mér. Miklu frekar ætti ég að gleðjast yfir því að afturförin hafi komið í ljós og að það verði gert eitthvað í því. Það er bara ekki líkt mér að vorkenna sjálfri mér svona. Auðvitað hef ég gegnum tíðina fyllst vonleysi og því um líkt. En bara ekki svona lengi.

Krakkarnir vita að sjálfsögðu hvað er í gangi. En þau skilja þetta samt ekki. Þau skilja ekki af hverju mamma er svona skapstygg. Af hverju mamma er allt í einu flæðandi í tárum. Mamma er nefnilega ekki vön að bregðast svona við. Í þeirra augum eru þetta jú vondar fréttir en það er bara að taka á því. Það er bara ekki flóknara en það. Enda læðast þau eins og litlar mýs í kringum mig að mér finnst. En það getur allt eins verið að ég sé að ímynda mér það. Ég veit ekki.

Ég er ekki hrædd við dauðann, er ekki meira kvalin en áður eða neitt svoleiðis. Ég er bara gríðarlega vonsvikin og týnd. Einnig vildi ég óska þess að ég ætti kristalkúlu þar sem ég gæti séð framhaldið og gert áætlanir samkvæmt því. Mér finnst svo vont og erfitt að geta ekki gert nein plön. Hvorki með heimilið eða fyrirtækið.

Nú verð ég bara að finna leið til að rífa hausinn út úr rassgatinu og halda áfram að vera ég og berjast.

Shit hvað ég eitthvað sjálfhverf núna!!.


Upside....... down

Í þessum skrifuðum orðum veit ég ekkert hvernig mér líður eða hvernig mér eigi að líða. Ekki gat árið nefnilega leyft sér að klárast áfallalaust hjá mér. Þess vegna ákvað ég að setjast við tölvuna og blogga (allra meina bót er mér sagt). Kannski verð ég einhverju nær á eftir. Hver veit?

Í dag tók ég nokkur skref aftur á bak að mínu mati, heilsufarslega séð. Málið er þannig vaxið að ég hef lengi kvartað við sérfræðinginn minn undan verkjum og vanlíðan, en eins og þið kannski (sum ykkar) munið að þá var ekki hlustað á mig. Ýmist hefur verið að líða yfir mig í tíma og ótíma eða ég ansi nálægt því. Hárið er allt að detta af svo eitthvað sé nefnt. Alltaf talaði sérfræðingurinn minn um að mér væri batnað en að það tæki tíma að verða almennileg aftur.

22 des kom sérfræðingurinn minn aftur úr fríi og hringdi hún í mig til að heyra hvernig ég hefði það. Eftir samtalið spurði hún hvort ég gæti komið morguninn eftir í rannsókn og svarið sem hún fékk var "fyrr frýs í helvíti". Á Þorláksmessu er brjálað að gera í búðinni og ekki séns ég hefði tíma til að fara í bæinn. Niðurstaðan varð sú að ég færi strax eftir jól eða í gær nánar tiltekið. Sama prófið var gert í gær og þegar kom í ljós að ég væri sjálf farin að framleiða kortisól aftur og það vel.

Ég fékk svo símtal í morgun frá ritara sérfræðingsins, þar sem við hjónin vorum beðin um að koma strax í dag kl 13:30. Þið getið ímyndað ykkur hvernig okkur leið. Ekki ætla ég að gera lítið úr hræðslunni sem bærði á sér. Bæði héldum við að nú væri heilaæxlið farin að gera einhvern óskunda og við blasti farmiði til Svíþjóðar. Ég hringdi strax í Sigurlínu bestu vinkonu mína og fékk hana til að koma og róa mig niður. Einnig fór ég til Sammýar vinkonu minnar og bað hana að fara með eins og eina bæn fyrir mig því ég væri hrædd. Ekki stóð á styrk vinkvenna minna. Og er ég virkilega rík að eiga þær að.

Ekki vissum við hverju við mættum búast við þegar við hittum sérfræðinginn. Hún byrjaði á að eyða miklum tíma í að útskýra og að mér fannst að réttlæta, hvers vegna hún hefði ekki hlustað á mig síðustu mánuði og verið svona hrikalega loðin í svörum. Einnig sagðist hún hafa viljað sjá með eigin augum hvernig ég líti út í dag og að ég væri ekki að ýkja með hárið. Við ókyrrðumst talsvert því ekki kom hún sér að efninu. En loksins kom það.  Niðurstaðan úr rannsókninni í gær var mjög neikvæð. S.s ég framleiði sama sem ekkert kortisól sjálf. Ekki gat hún svarað því hvers vegna niðurstaðan hefði verið svona góð síðast en ekki núna og ekki veit hún hvað er í gangi. Það hvort heilaæxlið er að gera eitthvað af sér kemur í ljós í næstu viku. Núna er ég komin aftur á byrjunarreit og þarf aftur að taka inn lyfin í 3 vikur og hitti hana næst 22 janúar. Þá verður frekari meðferð og framhald ákveðin.

Ég er mjög glöð að vita að ég var ekki að búa mér til þessa vanlíðan síðustu vikurnar og mánuði eins og hún hélt. Og ég er mjög glöð yfir því að hún sé búin að viðurkenna það. Enda hvæsti minn heittelskaði svolítið á hana og var ég mjög ánægð með það. En ég veit ekki hvernig mér líður með þessi skref til baka. Ég er þreytt á sálinni, það er það eina sem ég veit. Og ég er ekki frá því að vonleysi sé farin að segja til sín. Ég nenni þessu ekki lengur. Ég sagði við Sigurlínu á sunnudagskvöldið að niðurstaðan yrði ekki eins góð og síðast en ég bjóst ekki við svona stóru stökki.

Ég var tiltölulega nýbúin að sætta mig við hármissinn. Er núna með knallstutt hár. Þannig að ég get ýft því og þá ber minna á því í bili. Næsta skref verður að raka það allt af. Núna er ég eins og kvikmyndastjörnurnar................... ég vakna nákvæmlega eins og þegar ég fer að sofa!!! Svo þarf ég ekki að hafa áhyggjur af áramótagreiðslunni + töluverðan hársápusparnað. Nú verð ég að sætta mig við nýju fréttirnar og veit ég geri það............. á endanum. Þarf bara smá tíma.

Eins og ég hef áður sagt, að þá hlýtur Guð að hafa mikið álit á okkur hjónum fyrst hann telur okkur geta borið þetta endalaust.

 

Í stað þess að skrifa minn venjubundna mola þá langar mig að skrifa hérna örstutta bæn.

Guð. Hjálpaðu mér að viðurkenna alla þá króka sem leið mín liggur um. Hjálpaðu mér að höndla hið góða og það miður góða, sem á vegi mínum liggur.

Ég sendi ykkur öllum kveðju ljóss og kærleika. Þar til næst.

 

 


Ég óska ykkur farsældar á komandi ári.

Ekki fann ég hjá mér dropa af orku til að skrifa hérna jólakveðju til ykkar. Og skammast ég mín pínu fyrir það.

Þess í stað sendi ég hér áramótakveðju. Megi Guð færa ykkur ró í hjarta og birtu í sálinni á árinu sem er að ganga í garð. Megi þið öðlast 365 dagar sem færir ykkur óvænta atburði, helling af gleði, dassi af reynslu en umfram allt, hlass af hamingju. Einnig vil ég þakka ykkur öllum fyrir ómetanlegan stuðning og styrk sem þið veittuð mér öll á árinu sem er að líða. Mér hefur þótt mikið gott að hella úr skálum mínum hér á blogginu, og ekki hefur staðið á hvatningum, hlýju og jákvæðni frá ykkur.

Marga vini hef ég eignast hér og bind ég miklar vonir við að eignast enn fleiri, því endalaust er plássið sem ég hef fyrir nýja vini. Takk öll fyrir að vera til og ávallt til staðar.

Árið 2008 hefur svo sannarlega verið okkur hjónum viðburðaríkt en fullt af lærdómi. Eftir stöndum við sterkari og reynslunni ríkari. Og þó ég hafi nú lært mikið á árinu sem er að líða og sé á margan hátt þakklát fyrir það ................... þá held ég svei mér að ég taki mér frí frá þessum skóla á komandi ári!!!

Mín lokaorð fyrir þetta ár eru því þessi:

 

Reynslan er forréttindi þess að teljast manneskja.

Ég finn bragðið af spagettíinu.

Ég finn lyktina af hreinu lofti.

Ég finn viðareldinn hjá nágranna mínum taka kuldahrollinn úr loftinu.

Ég get elskað.

Ég finn sársauka.

Er þetta ekki yndisleg reynsla?

Og ég þakka Guði hvert augnablik og tilfinninguna fyrir þeirri lífsreynslu sem ég hef öðlast.

Ekki má ég svo klikka á molanum. Ef þú elskar lífið skaltu ekki sóa tímanum, því tíminn er það sem lífið er búið til úr. - Benjamin Franklin

 

P.s Takk fyrir afmæliskveðjurnar.


Jarðskjálfti í Svíþjóð og veikur drengur.

Ég er enn í vinnunni enda opið til 22 hjá okkur. En þar sem það er frekar rólegt sem stendur, þá ákvað ég að skella inn örstutta færslu.

Kolla sem hefur verið dyggur og traustur starfsmaður hjá okkur en þó umfram allt góð vinkona, er hætt störfum skv. læknisráði. Það þýðir að vísu að nú þurfum við Gunnar að standa allar vaktir fram á aðfangadag, en við ráðum við það. Á móti kemur að ég er búin að biðja fólk að hringja EKKI í okkur á aðfangadagskvöld, því þá verðum við sofandi!!!! Við hjónin verðum 2 ein þá og þurfum því ekki að stressa okkur yfir einhverri steik eða neitt svoleiðis. Enda ekki dropi af orku sem verður eftir þá.

Dísa Dóra vinkona mín, var svo falleg í sér að þegar hún heyrði þetta þá stóð ekki lengi á heimboði í steik til þeirra hjóna á aðfangadagskvöld. En eins og ég sagði við hana, að eftir að við verðum komin heim og farin að slaka örlítið á, þá verður ekkert minna en jarðskjálfti 7 á richter sem mun geta hrist okkur út úr húsi.

Ég þurfti svo að fara með hann Kristján minn á sjúkrahúsið í dag og líklega er hann með botnlangabólgu. Við vorum samt send heim aftur en hann á að koma strax ef hann versnar eitthvað. Annars ekki fyrr en kl 8 í fyrramálið. Ég vona að bara sé um slæma magakveisu að ræða, en annars verður bara að taka á því eins og öðru.

Svo rétt í lokin þá mátti ég til með að segja ykkur frá því að við eigum viðskipti við Svíþjóð, og einn sölumaðurinn þarna úti sendir okkur póst, þar sem hann segir frá skjálftanum upp á 4,7. Sá fyrsti í yfir 100 ár og að skaðinn hafi verið mikill. Því til sönnunar sendi hann okkur mynd. Við Gunnar vorum alveg miður okkur og vissum ekki hverju við ættum að búast að við. Við höfum sjaldan hlegið eins mikið og þegar við sáum myndina. Hér sjáið þið hana.

DAMAGE2 

Megum samt ekki gera grín að þessu. Kannski upplifðu þau þetta á hræðilegan hátt.

 

Jæja elskurnar mínar. Ég reyni svo að fara rúnt um bloggin ykkar um leið og tækifæri gefst. Got to go.

 

Molinn: Finni maður ekki frið í sálu sinni er vonlaust að leita hans annars staðar. - La Rochefoucauld.


Nefndu 4 atriði

Góð vinkona, vandvirk, ósérhlífin og óþolinmóð.

Ég las einhversstaðar þessa setningu "Ef þú bara vissir hversu fáir nenna í raun og veru að hugsa mikið, ef þá nokkuð um þín mál, þá hefðir þú minni áhyggjur af áliti manna"

Spáið í því hvað það er mikið til í þessu!! Við eyðum svo oft tíma í að hugsa um hvað öðrum finnist að við steingleymum að velta fyrir okkur hvað okkur finnst um okkur sjálf. Samt eru ansi margir sem munu segja að þeim sé sko skítsama um hvað öðrum finnst. En innst inni held ég að flestir átti sig á að þessi staðhæfing sé ekki alveg eins sönn og viðkomandi vill vera láta. Auðvitað er okkur ekki sama. Og satt að segja þá á okkur heldur ekki að standa á sama. Við þurfum bara að breyta þessu aðeins.

Leyfið mér að útskýra þetta aðeins nánar. Málið er að við hugsum að mínu mati of mikið um hvað öðrum finnist um hvað við erum að gera, hvernig við erum klædd, hvað við kaupum, hvaða áhugamál við höfum og svo framvegis. Þegar við ættum í raun að hugsa um hvernig við viljum láta minnast okkar eftir að við förum yfir landamærin. Ég er handviss um að sá hugsunarháttur fengi okkur til að hugsa aðeins meira áður en við framkvæmum, segjum eða gerum.

Einnig er það of algengt að við hugsum okkur niður. Hvað á ég við með því? Ég á við að þegar við rennum yfir okkur sem manneskju með kostum og göllum, þá séum við of gjörn á að einblína á gallana. Við viljum helst ekki segja of mikið frá okkar kostum, því aðrir gætu tekið því sem mont eða eitthvað svoleiðis.

Ég hugsaði um þetta í gær þegar ég var komin í rúmið, og var þá að velta fyrir mér hvaða 4 atriði myndu best lýsa mér. Aldrei hefði ég getað trúað því hvað þetta er í raun erfitt. Fyrst komu gallarnir ósjálfrátt upp, og voru sko snöggir upp á yfirborðið. Þá píndi ég mig til að finna eitthvað gott við mig. Ég strikaði yfir í huganum í það minnsta 100 sinnum. Af því mér fannst ég þá vera of góð með mig og ýmislegt í þá veru. Svo ákvað ég að hætta þessari vitleysu því það heyrði hvort eð er engin í mér þar sem ég var að hugsa þetta. Þá gat ég alveg talið nokkur atriði. Þá fór ég að velta fyrir mér af hverju í ósköpunum ég gæti ekki sagt þetta um sjálfa mig? Var þetta eitthvað feimnismál? Er endilega dyggð falin í hógværðinni? Er bara ekki allt í lagi að ég hafi til að bera kosti nákvæmlega eins og allir aðrir?

Ég hélt það nú!!! Og hér efst í færslunni birtast mín 4 atriði sem mér finnst lýsa mér best. Og nú kemur tilgangurinn með þessari færslu. Mig langar að biðja ykkur um að gera það sama. Ég myndi gjarnan vilja heyra hvaða 4 atriði lýsa ykkur best. Ég veit minnst um 1 gott atriði við hvert ykkar sem hérna kvittið reglulega og samt þekki ég mörg ykkar lítið sem ekkert. Flest ykkar eigið ykkar einkenni hér á blogginu sem segir margt um ykkur. Og ég hef verið svo lánsöm að hitta ekki enn á neinn sem ég get ekki sagt eitthvað gott um.

Ég mana ykkur til að gera þetta og sum ykkar mun jafnvel finnast þetta erfiðara en þið tölduð. Takið eftir hvernig hugurinn fer af stað um leið og þið byrjið. Hversu gagnrýnin þið verðið jafnvel áður en þið sendið. Alveg hreint ótrúlegt hvað við erum oft óvægin við okkur sjálf. En vitiði............... þegar upp er staðið er ég sjálf mjög ánægð með að deila með ykkur þeim kostum sem ég tel mig búa yfir sem og galla. En það er eitt sem mig langar alveg sérstaklega að biðja ykkur um...... og það er að minnst 3 atriði séu kostur en ekki galli Wink

 

Að lokum er hinn vanabundni moli: Hefur hver til síns ágætis nokkuð. - Brennu-Njáls saga. - Gunnar á Hlíðarenda.

 

Farið vel með ykkur og munið að mér finnst þið ÆÐI.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband