Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Eldspýtnastokkur í yfirstærð.

Skenkur3  Mikið hrottalega er ég svakalega og alveg hriiiiiiikalega klár!!! Já og svo er ég svo hógvær og hjartalítillát líka eins og bersýnilega sést hér. En mér tókst s.s sjálf að setja myndina inn. Ég veit ég ætlaði að biðja eiginmanninn um að redda þessu fyrir mig þegar hann færi á fætur en það kom bara einhver fjárans mótþrói upp hjá mér og ég hreinlega VARÐ að gera þetta sjálf og voila.

Hér er s.s skenkurinn góði sem ég tala um í síðustu færslu. Ég veit þetta er dauður hlutur.................. en mikið svakalega sé ég eftir skápnum. Þið getið stækkað myndina með því að klikka á hana beint. Miðjuhurðirnar 2 voru með steindar rúður (svona eins og franskir gluggar). En ég hef grun um að hangi nú þarna saman af gömlum vana og viljanum einum saman. Ef þið getið gefið mér einhverjar upplýsingar um hugsanlegt verð þá getið þið annað hvort kommentað hér eða sent mér póst á christinedevolder@msn.com . Nú þið sem skiljið ekki bofs í því sem ég er að tuða hérna, verðið eiginlega að lesa síðustu bloggfærsluna mína og þið getið treyst á það að þetta mun allt meika sens eftir það.

Kram á línuna á meðan 


HJÁLP........... einhver????

Nú stend ég frammi fyrir þeirri vinnu að verðmeta tjónið sem við hjónin urðum fyrir í skjálftanum í síðustu viku. Ég get sko sagt ykkur það að þetta er engu minna verk en tiltektin sem fylgdi þessum ósköpum. Sé mig í anda hringjandi í fólk og segja "hurruuuuuuuuuuu........ manstu eftir því að þú gafst okkur hriiikalega fallegan kökudisk í brúðkaupsgjöf? Sko.....Ekki vill svo vel til að þú munir hvað hann kostaði Shocking?" 

En snúum okkur að hjálpinni sem mig vantar. Veit einhver um antiksala (núverandi eða fyrrverandi) sem gæti verðmetið fyrir mig antikskáp sem lítur núna út eins og eldspýtnastokkur í yfirstærð? Helst einhvern sem ekki fríkar út yfir því hversu mörg símtöl hún/hann er að fá með beiðnum þar að lútandi? Lenti nefnilega í því í gær að hringja í svoleiðis verslun og talaði þar við konu sem hreinlega missti sig yfir álaginu vegna þess að út af öllu þessu veseni að þá hefði hún núna engan tíma til að sinna sínum viðskiptavinum, núna væri hún sko búin að fá nóg og að hún tæki 3000 kr fyrir hvert mat. Svona lét kerlingaranginn móðan mása að því er virtist endalaust. Ég varð svo orðlaus (og það er ekki auðvelt að gera mig orðlausa) að ég hreinlega stamaði og varð gjörsamlega miður mín. Ætli ég hafi ekki bara verið dropinn sem fyllti mælinn hjá þessari elsku. Ég í það minnsta vona að dagurinn í dag verði betri hjá henni en hann augljóslega var í gær.

Ég er að sjálfsögðu fús að borga fyrir svona mat, enda borga tryggingarnar fyrir þetta Devil. En þetta þarf víst að fara þannig fram að viðkomandi antiksali þarf að kvitta aftan á myndina þar sem hann/hún tekur einnig fram verðið. Ég yrði líka þakklát þó ég fengi ekki nema hugmynd um hvers virði þessi stokkur á sterum er, svona rétt á meðan þessi elska sem ég talaði við í gær róar sig niður svo ég geti fengið þennan stimpil hjá henni. En ég get þá gert einskonar kostnaðarplan í millitíðinni.

Ef þið ekki vitið um neinn slíkan, þá yrði ég ofsalega hamingjusöm kona ef þið gætuð bent bloggvinum ykkar (ég á nefnilega ekki svo marga enn sem komið er) á þessa færslu mína og þá hlýtur einhver á endanum að þekkja einhvern. Eða er það ekki?

Hugmyndin var að setja mynd af skápnum hér við þessa færslu en þetta er bara ekki að takast eins og er. But believe you me............. ég gefst ekki upp. Þegar svona gerist þá bíð ég bara salíróleg þar til minn elskulegi vaknar og læt hann gera þetta fyrir mig. SVO sniðugt á Íslandi Grin. Myndin mun s.s (vonandi) koma inn hérna seinna í dag. Í millitíðinni er hægt að sjá þennan skenk hérna http://blaze.is/Albúm/tabid/742/AlbumID/1504-258/Default.aspx á bls 8.

Munið svo að bros er eins og faraldur................... smitast hrikalega hratt. Gerum því meira af því. Ekki veitir af.

 


Fjársjóðirnir mínir.

Ég fann loksins út í gær (alveg óvart samt) hvar ég gæti sett inn upplýsingar um mig og þeirra sem skipta mig mestu máli. Án þeirra væri líf mitt ansi grátt og leiðinlegt. Þetta er kannski svolítið langur lestur (enda á ég mörg börn) en ég hvet ykkur samt eindregið til þess að lesa um þessa fjársjóði mína (þið getið þá bara gert þetta í skömmtumWink). Þið klikkið bara á myndina af ísbirninum hér til hliðar og þá getið þið lesið þetta.

En það eru svo margir sem í kringum mig eru sem í raun og sanni verðskulda pláss þarna líka, en þá yrði þetta bara svo svakalega langt að það myndi ekki nokkur heilvita maður nenna að lesa þetta. Systkini eiginmanns minns eru 6 og eru öll upp til hópa hjartahlýtt og yndislegt fólk og eru makar þeirra engir eftirbátar þeirra. Engin fjölskylda hefur tekið mér jafnvel og hún. Fátt finnst mér yndislegra en að faðma hana elsku Guðrúnu tengdamóður mína, því hlýjan og væntumþykkja sem frá faðmlaginu stafar verður aldrei með orðum lýst. Ég hef átt við mikil veikindi að stríða undanfarna mánuði (og á enn) og þegar ég hef verið við það að bugast undan þeim þá hefur öxl Sigurðar svila mins (fyrir utan öxl Gunna minns að sjálfsögðu) verið öxlin sem mér hefur þótt best að gráta við. Og hún Kolla mín sem starfar hjá okkur hjónunum hefur svo sannarlega reynst okkur sending frá æðri máttarvöldum, því bæði er hún yndisleg vinkona en líka alveg einstakur starfskraftur. Það að geta leyft sér að vera veikur án þess að þurfa að hafa áhyggjur af búðinni er ekki sjálfgefið. Án ofantaldra hefðum við elskulegur eiginmaður minn (sem einnig hefur staðið sig eins og hetja í þessu öllu saman) ekki getað og gætum ekki gengið í gegnum þetta. Því segi ég Takk öll fyrir að vera hluti af mínu lífi Heart

Njótið nú dagsins sykurpúðarnir mínir eins og morgundagurinn væri ekki til.


Bíddu........ átti þetta ekki að vera nánast búið?

Hér er smá beiðni lögð fram í fyllstu einlægni til þessara jarðfræðinga sem tjá sig um framhaldið í fjölmiðlum: Vinsamlegast samræmið ykkar skoðunum og sleppið því að draga úr frekar en hitt. Eins og þið sjáið í síðustu færslunni hjá mér þá snöggreiddist ég eftir að hafa hlustað á hádegisfréttirnar en svo ákvað ég að taka nú hausinn út úr rassgatinu og sleppa þessari skapvonsku og trúa bara því besta. En hvað gerðist svo nokkrum tímum seinna? Eftir þann skjálfta þá gat ég hreinlega ekki meir, settist bara niður og grét út í eitt. Var reyndar ekki viss um afhverju ég væri að gráta........ ég bara grét.

Lögreglan talar um að ekki hafi borist neinar tilkynningar um frekari skemmdir sem er gott að heyra. Persónulega hef ég ekki enn þorað heim (en ég bý á Selfossi eins og áður hefur komið fram) til að kanna hvort eitthvað meira hafi skemmst. Að vísu held ég að ég gæti ómögulega sagt til um það hvaða skemmdir eru eftir hvaða skjálfta. Svona ef ég á að vera fullkomlega honest Blush 

Eftir skjálftann á fimmtudaginn þá virtist eingöngu innbúið hafa eyðilagst. Á föstudaginn sá ég að sprunga hefði myndast í gólfið eftir endilöngu húsinu. Á laugardaginn var ég farin að sjá enn meiri sprungur um alla veggi sem stækkuðu að því er virtist endalaust. En svo var mér allri lokið á sunnudaginn þegar ég tók eftir því að panelklætt loftið í forstofunni var farið að gliðna ískyggilega. Hef ekki farið heim síðan þannig að ég veit ekki hvernig ástandið er þar núna. Vonum bara það besta. Svo er maður ofan á allt annað að heyra sögur um bíræfna þjófa sem ganga um ruplandi og rænandi! Hvað er eiginlega að fólki??

Ég veit ég lofaði í síðustu færslu að vera hressari í skapinu næst þegar ég bloggaði. But my Mojo verður bara að bíða betri tíma people.

Guð geymi ykkur öll og þökkum í það minnsta fyrir að fólk hefur sloppið óskaddað hingað til.


mbl.is Snarpur kippur á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju á maður að trúa?

Svei mér ef það fari ekki bara best á því að maður hætti að fylgjast með þessum fréttum um mögulega jarðskjálfta/eftirskjálfta hérna heima. Mér finnst eins og þessir spekingar tali út og suður. Sumir segja að það eigi alveg örugglega eftir að koma fleiri stórir á bilinu 4-5, en svo segja aðrir að þetta sé nú allt að verða búið og í mesta lagi von á eftirskjálftum af stærðinni 2-2,5! Hvort er rétt???

Eitt get ég sagt ykkur...................... svona fréttaflutningur fer meira í skapið á mér en tilhugsunin um hvernig húsið mitt og fleira fór við stóra skjálftannAngry.

Á maður að fara eða vera? Á maður að taka til eða ekki? Ofan á áfallið sem hlaust af þessu bætist við nagandi óvissa. Og sú tilfinning er engu betri. Ég átta mig alveg á því að ekki er hægt að segja með vissu hvað framundan er þegar kemur að jarðhræringum, en getur þetta fólk sem flokkast sem sérfræðingar á þessu sviði ekki í það minnsta verið sammála um hvað þau ætla að segja fólki?

Ef þið vitið eitthvað meira en ég þá hvet ég ykkur endilega til að commenta hérna og deila því með mér. Því ég er að fríka út á þessu. Kannski er sjokkið bara rétt að koma fram hjá mér núna.

Lofa ykkur að vera betri í skapinu í næstu færslu Blush


Húsið mitt eins og veðrið á Íslandi

Einu sinni heyrði ég sagt við ferðamann sem staddur var hér á landi "Ef þér líkar ekki veðrið, þá skaltu bara skella þér inn, fá þér kaffi og með því og veðrið verður pottþétt búið að breytast þegar þú ferð út aftur!". Ekki flókin fræði það og nokkuð til í því. 

Eins og fyrirsögnin bendir til að þá er ástandið á húsinu mínu á Selfossi svipað. Ég labba hring og tek myndir........... sest niður, fæ mér kaffi, kíki á netið og svona dúllerí......... fer svo annan hring um húsið vopnuð mikið notaðri myndavél, og hvað finn ég? Jább, allt rétt hjá þér! Nefnilega ný sprunga Shocking eða þá að þær sem ég var þó búin að finna hafa stækkað.

Magnað samt hvernig lífið einhvern veginn heldur bara áfram sinn vanagang þrátt fyrir allt sem er í gangi í kringum okkur og þrátt fyrir þá fullvissu að fleiri skjálftar eigi eftir að koma. Ég ákvað s.s í gær að nú væri búið að stara nóg á allt draslið og nú yrði sko tekið til. Skipaði svo erfingjunum öllum að drífa sig nú inn til sín og taka til og gera það eins og þau ættu von á sjálfum forsetanum í heimsókn. Þau horfðu nú á mig með hálfgerðri vorkunn í augnaráðinu, hristu svo bara hausinn og fóru svo inn að taka til. Þau breyttust nú ekki mikið við skjálftann þessar elskur þegar kemur að tiltekt. Þetta var bara gert upp á gamla góða mátann (eins og við eflaust mörg hver gerðum á þessum aldri) og öllu sópað ýmist inn í skáp eða undir rúm. Forsetinn á ekkert með að kíkja á þessa staði hvort eð er!! 

Eftir rassíuna heima, var bara skellt í lás og rokið upp í bústað sem við áttum pantaðan við Apavatn. Og ég verð að segja eins og er að einni spurningu skýtur ansi oft upp kollinum núna en hún er þessi "hvernig verður ástandið heima þegar við förum aftur?"

Ég er búin að setja tengla hér til hliðar þar sem hægt er að fara beint inn á myndaalbúmin til að sjá skemmdirnar. Skil samt ekki hvað við hjónin erum eitthvað ósköp róleg yfir þessu öllu. Ætli værukærðin sé bara hluti af áfallinu? Og þó....... það eina sem skipti máli er óskemmt, en það eru fjölskylda, vinirnir og fólkið allt. Og ég má heldur ekki gleyma að þakka forsjóninni fyrir að ekki fór verr hjá okkur en þetta.

Kram á línuna og farið vel með ykkur í dag.


mbl.is Gríðarlegt verkefni framundan við að lagfæra hús og mannvirki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að taka til eða ekki. Það er spurningin

"Jæja Tína mín....... það þýðir ekkert að hanga bara og horfa á draslið" hugsaði ég með mér í morgun. En svo ákvað ég að fá mér fyrst kaffi og skoða fréttirnar á mbl. Og þegar ég sá í þessari frétt að það mætti gera ráð fyrir áframhaldandi eftirskjálftum þá ákvað ég að ég ætlaði barasta að hanga áfram og horfa á draslið. Ef þið viljið þá getið þið farið á færsluna mína hér fyrir neðan þar sem ég gef upp slóð að myndaalbúmi og skoðað "eftirskjálftamyndir". Það eru nú takmörk fyrir því hversu oft maður nennir að gera sömu vorhreingerninguna get ég sagt ykkur. En ég vil taka fram að ég er einmitt búsett á Selfossi.


mbl.is Meginskjálftinn var 6,3 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn bloggarinn (jarðskjálftaáhrif?)

Hvort sem þið trúið því eða ekki, þá er ég ein af þeim sem vakna alltaf sjálfviljug fyrir allar aldir. Gildir þá einu hvort það er virkur dagur eða helgi. Maður er náttúrulega langt frá því að vera normal!

Stundum líða margir klukkutímar áður en nokkur annar vaknar hér á þessu heimili. Hef ég því gert það að háfgerðri rútinu að fara svokallaðan bloggrúnt. Úfffff hvað mig langaði nú oft að tjá mína skoðun eða bara kvitta, en gerði bara aldrei neitt í því.

En þá gerðust undur og stórmerki. Eins og þið vitið þá skók móðir jörð Selfossbæinn allrækilega og greinilegt að fleira hristist en húsið hjá mér (s.s hausinn á mér) en ég er búsett á Selfossi. Tína ákvað s.s að prufa að stofna bloggsíðu. Svo verðum við bara að sjá hversu vel mér gengur að halda henni við Whistling

Ef þið viljið og hafið áhuga á þá getið þið skoða FULLT af eftirskjálftamyndum sem ég tók af heimilinu hér http://blaze.is/Albúm/tabid/742/Default.aspx . En þarna eru 2 albúm með myndum. Maðurinn sem ég deili skugga með (Gunnar eiginmaðurinn), Leifur elsti sonur minn (19), tengdadóttir og ég vorum fram á rauða nótt að gera bara gangfært um húsið. Daginn eftir kom elskuleg tengdamóðir mín, Jónína mágkona og dóttir mín (18) og tóku til við að þrífa með látum sameiginlega rýmið í húsinu.  Kann ég þeim sko bestu og endalausar þakkir fyrir það. Sérstaklega þar sem ég var að koma úr stórri aðgerð og það eina sem ég gat gert var að horfa á. Síðan horfði maður inn í hin herbergin í smá stund............ og lokaði svo bara hurðinni. Einhvernveginn á maður bara von á fleiri skjálftum og nennir því ekki að eiga við þetta sem stendur. Fyrstu viðbrögð yngsta sonar minns (15) eftir skjálftann þegar hann var búin að ganga úr skugga um að það væri allt í lagi með alla voru "Og ég sem þreif hérna í gær!!!". Og var sko langt frá því að vera sáttur. Ætla ég því alveg að sleppa því að tuða yfir því að hann eigi að taka til inni hjá sér.

En það er alltaf hægt að finna fyndnar og skemmtilegar hliðar á öllum aðstæðum og má ég til með að deila einni með ykkur.

Hann Gunnar minn var að hætta í sinni vinnu daginn eftir stóra skjálftann, og var hann kvaddur með virktum af vinnufélögum sínum. Þau voru sko ekki í neinum vandræðum með að finna viðeigandi kveðjugjöf get ég sagt ykkur. En þau gáfu honum honum 2 kassa af 20 stk matarstellum og límstiftiLoL. Svo urðu miklar umræður og pælingar um hvort Gunnar ætti að taka upp báða kassana strax eða bara annan og eiga hinn til vara. Hann gæti allavega límt saman brotin aftur ef út í það væri farið.

En nú ætla ég að hætta þessu blaðri í bili og kanna hvort ég finni fleiri sprungur í húsinu. En þessa dagana þá er það nýjasta áhugamálið mitt.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband