Afhverju að flækja hlutina?

Þetta minnir mig á sögu af henni Önnu Bellu. 

Einu sinni þegar við tvíburasysturnar vorum í barnaskóla, þurftum við að teikna mynd. Þarna sat ég samviskusemin uppmáluð og vandaði mig mikið við að teikna fallega mynd. Á meðan var systir mín skoppandi og hoppandi um allt. Þar til pabbi spurði hana hvort hún ætlaði ekki að fara að mínu dæmi og klára sitt heimanám. Anna hélt nú ekki því hún væri sko lööööngu búin með sína mynd. Pabbi heimtaði auðvitað að fá að sjá myndina, því engin hafði séð til hennar meðan hún teiknaði. Anna lét ekki segja sér þetta tvisvar og kom til baka með blað sem hún hafði málað svart.

Pabbi: Þetta er ekki mynd Anna mín.

Anna: Júbb.................. þetta er nóttin W00t

Það fyndnasta við þetta allt saman var að hún komst upp með þetta!!

 

Moli dagsins er því: Frelsi er að hlýða þeim lögum sem maður hefur sjálfur sett sér. Rousseau


mbl.is Fékk einkunn fyrir tveggja blótsyrða ritgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir kveðjuna inni á mínu bloggi.

Ég er hrifin af þessari sögu um myndina hennar systur þinnar - svart er oft merki um mikla gleði og gálga og þar að auki eru margir listamenn sem gera svört verk bæði í málun og þrívídd. Einni listakonu man ég eftir sem heitir Guðrún Einarsdóttir sem hefur gert svört verk með sérstakri áferð og einnig önnur dökkleit.

Ef hún hins vegar hefði krassað þá er það oftar en ekki merki um vanlíðan.

Það er nefnilega oft erfitt að gera kröfu á skapandi verkefni og ætti að taka því eins og það kemur frá börnum, þau eru misjafnlega stefnd og væri í raun gott efni til umræðu um þeirra mál.

Edda Agnarsdóttir, 1.7.2008 kl. 09:32

2 Smámynd: Tína

Lífsgleði, húmor og léttleiki voru sko einkennandi hjá henni systu. Ég var aftur á móti andstæðan, róleg, alvörugefin og ábyrgðarfull. Það sem hún gat tekið upp á var stundum hreint með ólíkindum

Tína, 1.7.2008 kl. 09:53

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

skemmtileg saga...eigðu ljúfan dag

Hólmdís Hjartardóttir, 1.7.2008 kl. 10:49

4 Smámynd: JEG

Hahaha góð!

Já hún er sko greinilega sniðug hún systir þín. Efa samt að þú sért verri.

En það er jú oft tilfellið að tvíburar eru sitthvor manneskjan. Þó samhugur sé mikill þá eru þeir ekki eins. Hvorki í lund eða framkomu. Mágkona mín á tvíbura og þær eru nú svart og hvítt í flestu. Þó eineggja séu.

Knús á daginn þinn.

JEG, 1.7.2008 kl. 10:53

5 identicon

Sæl svilkona. Sniðug saga hjá þér og margir afar góðir pistlar og gaman að lesa. Takk fyrir kveðjur hinumegin.

Ingibjörg svilkona (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 11:12

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.7.2008 kl. 17:16

7 Smámynd: Tiger

 Hahaha ... bannsettur prakkarinn í systur þinni! En yndislegt ímyndunaraflið sem hún hefur haft þarna, að láta sér detta þetta í hug sýnir bara hve þroskuð hún hefur verið og úrræðagóð!

Knús á þig tvíbaka litla ...

Tiger, 1.7.2008 kl. 19:08

8 Smámynd: Gunna-Polly

já enda er nóttin svört sé ekkert að þessu sko

Gunna-Polly, 1.7.2008 kl. 20:03

9 identicon

Hæhæ Tína - mikið er gaman að heyra frá þér hér á Blogginu. Það fer þér líka einstaklega vel að blogga - málglaða daman!

Ég vona að þú hafir það sem allra best, ég hef hugsað mikið til þín undanfarið.

jæja - ætla að setja þig í favorites og tjekka oftar á þér.

b.kv. Elín í Hosiló 

Elín í Hosiló (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 23:52

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Tvíburasystur mínar voru eins og dagur og nótt, þ.e.a.s. mjög ólíkar og fékk systir mín sem var dugleg að læra og var stillt og góð, stundum skammir frá kennurum, fyrir að passa ekki að systirin skilaði sínum verkefnum, og væri stillt og góður nemandi eins og hún.    Flottur finnst mér moli dagsins hjá þér.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.7.2008 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband