Þá er komið að því.

Á morgun gerist það.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir er í símaskránni ef einhverjum vantar far austur og vill vera með (búin að skrifa hjá mér númerið og alles). En hún tekur það fram að það er reykt í hennar bíl. Það er ekki skyldumæting kl akkúrat 16:30. En við leggjum af stað upp í brugghús um 10 mínútur í fimm. Fram að þeim tíma þá verður spjallað, skoðað og hlegið.

Ekki er of seint að tilkynna komu. Þið hafið gott af því að breyta aðeins til og skella ykkur austur. Því fleiri því skemmtilegra og endilega talið með ykkur gesti.

Ekki þurfið þið heldur að hafa kvittað hér til að fá að koma. Eina skilyrðið er viljinn til að gera sér glaðan dag.

Mætingin er við Herraverslunina Blaze á Selfossi. Búðin okkar er hrikalega vel merkt. En þar sem bankarnir eiga alla athyglina, þá ætla ég að nota þá til að vísa til vegar. Kaupþing og Sparisjóðurinn eru beint á móti okkur og Glitnir er við hliðina. Ykkar einlæga verður sjálf á staðnum til að taka á móti ykkur.

 

Ég hlakka til að sjá ykkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kemst ekki en verð í bandi.  Góða skemmtun þið allar.

Mikið djö.. er Jóna Kolbrún flott kerling.  Það er reykt í hennar bíl, djöfull fíla ég svona fólk.  Arg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.11.2008 kl. 15:06

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Hlakka til

Solla Guðjóns, 7.11.2008 kl. 16:13

3 Smámynd: www.zordis.com

Góða skemmtun elskur!

Það verður gaman þar sem þu og Sollan komið saman. Knús í kvöldið!

www.zordis.com, 7.11.2008 kl. 21:04

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég hlakka til að hitta þig Tína

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.11.2008 kl. 01:18

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 8.11.2008 kl. 10:20

6 Smámynd: Landi

Sjáumst í dag ;)

Landi, 8.11.2008 kl. 13:18

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki viss um að komast! Svolítið kom upp á! Reyni eins og ég get!

Hrönn Sigurðardóttir, 8.11.2008 kl. 13:39

8 Smámynd: Heimir Tómasson

Skemmtið ykkur. Knús frá Kanada.

Heimir Tómasson, 8.11.2008 kl. 19:13

9 Smámynd: Landi

Takk fyrir kvöldið Tína mín..virkilega skemmtilegt..

Ég verð að hrósa þér og Gunnari með búðina,hún er bara Flott..

Landi, 9.11.2008 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband